Trúnaðaryfirlýsing

Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar.

Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar. Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Tunglið veitingar miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Gagnasöfnun

Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru meðal annars nafn og netfang. Tunglið veitingar notar þessar upplýsingar til að bæta þjónustu, halda utan um fyrirspurnir o.þ.h. Gögnin sem safnað er eru geymd á vefþjóni í að hámarki 1 ár. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um þá verði fjarlægðar.

Vafrakökur

Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur.
Tunglið veitingar notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.

Tunglið veitingar notar Google analytics til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn.

Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki

Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.

Fyrirspurnir og bókanir

Á síðum vefsins er hægt að bóka veislusal í gegnum þar til gert form, þar sem notendur gefa upp nafn sitt, síma og netfang svo hægt sé að fylgja bókununni eftir. Þessar skráningar eru geymdar í að hámarki 1 ár í vefumsjónarkerfinu.

Hægt er að hafa samband í gegnum info@tunglidveitingar.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.